Rúmföt 70x100 Magic Forest pastel

Rúmföt 70x100 Magic Forest pastel

7990 kr.
Magn

Frí heimsending á pöntunum yfir 15.000 kr.

14 daga skilafrestur. Kaupandi borgar sendingarkostnað.

Í samstarfi við Södahl hefur teiknarinn og hönnuðurinn Michelle Carslund nú hannað nýja barnalínu sem ætti að gleðja yngstu meðlimi fjölskyldunnar. Michelle er helst þekkt fyrir einfaldar og barnalegar teikningar sínar, en margir ættu að kannast við hinn pastellitaða heim sem Michell hefur skapað, með fallegum trjám og feimnum dýrum sem loka augunum um leið og þú lítur á þau. Vörulínan inniheldur meðal annars gólfmottu, veifur, teppi, rúmfatnað, handklæði og þvottapoka.

Rúmfötin koma í tveimur litaútfærslum (pastel og sort) og eru þau fáanleg í þremur stærðum; 70x100, 100x140 og 140x200 cm.

Magic forest rúmfötin sýna heillandi skóginn, en þar finnur þú meðal annars bambus, beyki og ýmis konar ævintýralegar plöntur. Á sjóndeildarhringnum sérðu fjöll og eldfjöll. Skógurinn er heimili alls konar dýra, ef þú horfir upp í trén, gætir þú séð pandabirni og undir mosaþöknum jarðvegnum búa rauðleitir refir.

Danska vörumerkið Södahl býður upp á mikið úrval af fallegum textílvörum fyrir heimilið, svo sem rúmföt, borðdúka, viskastykki, handklæði, púða, teppi og fleira. Tískustraumar og sjálfbærni fara saman hönd í hönd hjá Södahl, en flestar þeirra vörur eru Oeko-Tex® vottaðar ásamt því sem allar barnavörur eru með hina vistvænu GOTS vottun.

Mál (L x V x H) 0 x 0 x 0
Þyngd 0