Heimilið okkar opnaði í desember 2020 og er netverslunin rekin af Filmís Hönnunarstofa slf., kt. 710817-0300, VSK númer - 129273
Bjarkarheiði 22, 810 Hveragerði. Netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Þegar þú leggur inn pöntun hjá heimilidokkar.is samþykkir þú eftirfarandi skilmála.

Afgreiðsla og afhending pantana

Allar pantanir eru afgreiddar á 1-3 virkum dögum eftir pöntun og sendar af stað til kaupanda á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Áætlað er að afhendingartími pantana sé 4 til 5 virkir dagar. Allar pantanir eru sendar upp að dyrum eða á næsta pósthús með Íslandspósti. Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun. 

Á hátíðis-, álags og viðburðardögum getur afhendingartími lengst, við þökkum skilninginn.

Sendingakostnaður er 990 kr. fyrir sendingar á pósthús, 1290 kr. fyrir heimsendingar. Frí heimsending er á pöntunum ef verslað er fyrir 15.000 kr. og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru. Sé greitt fyrir heimsendingu með pósti tekur Heimilið okkar ekki ábyrgð á því ef Íslandspóstur sendir ekki upp að dyrum. 

Um pantanir sem eru sendar með Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Heimilið okkar ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Heimilið okkar til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

ATH! Á útsölum, hátíðardögum og öðrum álagstímum má búast við töfum á póstsendingum.

Greiðslumöguleikar.

Heimilið okkar býður upp á val um að greiða með debetkorti og kreditkorti eða með millifærslu. Allar kortagreiðslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Rapyd, Búðin tekur því hvorki við né geymir kortaupplýsingar.

Verð

Heimilið okkar áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun. Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti en sendingakostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram. Ef varan er ekki til á lager látum við þig vita um væntanlegan komutíma eða endurgreiðum sé þess óskað.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Vörum er hægt að skila innan 14 daga eða fá henni skipt í aðra vöru eða fá hana endurgreidda með sama máta og greitt var fyrir hana. Athugið að ef greitt var fyrir vöruna með kreditkorti þá er eingöngu endurgreitt á sama kort. Ef vara hefur verið gefin að gjöf þá er eingöngu boðið upp á vöruskipti eða inneignarnótu, ekki endurgreiðslu. Skilyrði er að koma með kvittun eða framvísa skiptimiða við vöruskil eða skipti.

Framvísa þarf kvittun eða skiptimiða við vöruskil eða vöruskipti. Vöru fæst eingöngu skilað eða skipt sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum og ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar samkvæmt kvittun.

Útsöluvöru fæst hvorki skipt né skilað.

Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur og kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist Heimilið okkar.

Gölluð vara

Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum sé þess óskað. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. með upplýsingum um galla vörunnar. 

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila, nema svo beri skylda til gagnvart lögum. Allir sem versla hjá okkur eru skráðir sjálfkrafa á póstlistann okkar.

Fyrirvari

Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum.


Ertu með fyrirspurn eða ábendingu? Sendu okkur póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.