Rúmföt 140x200 Raindrops sort

Rúmföt 140x200 Raindrops sort

14990 kr.
Magn

Frí heimsending á pöntunum yfir 15.000 kr.

14 daga skilafrestur. Kaupandi borgar sendingarkostnað.

Í samstarfi við Södahl hefur teiknarinn og hönnuðurinn Michelle Carslund nú hannað nýja barnalínu sem ætti að gleðja yngstu meðlimi fjölskyldunnar. Michelle er helst þekkt fyrir einfaldar og barnalegar teikningar sínar, en margir ættu að kannast við hinn pastellitaða heim sem Michell hefur skapað, með fallegum trjám og feimnum dýrum sem loka augunum um leið og þú lítur á þau. Vörulínan inniheldur meðal annars gólfmottu, veifur, teppi, rúmfatnað, handklæði og þvottapoka.

Rúmfötin koma í tveimur litaútfærslum (pastel og sort) og eru þau fáanleg í þremur stærðum; 70x100, 100x140 og 140x200 cm.

Raindrops línan er með einföldu og sætu myndefni sem sýnir litla rigningardropa glampa í skóginum. Á himninum fyrir ofan, á koddanum, skín sólin og þerrar og yljar þeim sem hafa orðið blautir í rigningunni.

Danska vörumerkið Södahl býður upp á mikið úrval af fallegum textílvörum fyrir heimilið, svo sem rúmföt, borðdúka, viskastykki, handklæði, púða, teppi og fleira. Tískustraumar og sjálfbærni fara saman hönd í hönd hjá Södahl, en flestar þeirra vörur eru Oeko-Tex® vottaðar ásamt því sem allar barnavörur eru með hina vistvænu GOTS vottun.

Mál (L x V x H) 0 x 0 x 0
Þyngd 0